Hæð: Mjög stórt tré, stórvaxnast lerkitegunda, en óvíst með hæð hérlendis
Vaxtarlag: Einstofna tré með mjóa, reglulega krónu
Vaxtarhraði: Mikill í æsku
Landshluti: Í innsveitum
Sérkröfur: Ljóselsk tegund
Styrkleikar: Mjög beinvaxið, verðmætur viður
Veikleikar: Haustkal, nálasjúkdómar, barrviðaráta, lítil reynsla
Athugasemdir: Risalerki hefur svipaða aðlögun að veðurfari og evrópulerki, þ.e. vex yfirleitt of lengi fram eftir hausti, en er mun beinvaxnara þrátt fyrir það. Virðist þó vera viðkvæmt fyrir bæði nála- og átusjúkdómum hérlendis, sem evrópulerki er ekki