Loftslagsbreytingar og viðbrögð við þeim
Félagsheimilinu Patreksfirði 16.-17. mars
Árleg Fagráðstefna skógræktar var að þessu sinni haldin á Patreksfirði. Meðal viðfangsefna ráðstefnunnar að þessu sinni voru loftslagsbreytingar og viðbrögð við þeim, gæði íslensks timburs og notagildi, tækni og notkun landupplýsinga ásamt fleiru. Alls voru flutt ríflega tuttugu erindi en einnig farið í skoðunarferð um Tálknafjörð og litið á vestfirska skóga.
Fyrri ráðstefnudagurinn skiptist í þrjá meginkafla eða umfjöllunarefni sem voru fyrirferðarmest í þeim erindum sem flutt voru þann daginn:
- Yfirvofandi loftslagsbreytingar og viðbrögð við þeim
- Hvernig er efnið úr íslenskum skógum og hver verða hugsanleg framtíðarnot
- Landupplýsingatækni og notkun hennar
Alls var á þriðja tug erinda flutt á ráðstefnunni.
Skipuleggjendur Fagráðstefnu skógræktar 2016 eru:
- Skjólskógar á Vestfjörðum: Sæmundur Kr. Þorvaldsson
- Skógrækt ríkisins: Pétur Halldórsson
- Rannsóknastöð skógræktar, Mógilsá: Aðalsteinn Sigurgeirsson
- Skógfræðingafélag Íslands: Bergsveinn Þórsson
- Skógræktarfélag Íslands: Einar Gunnarsson
- Landbúnaðarháskóli Íslands: Bjarni Diðrik Sigurðsson
Dagskrá fagráðstefnu 2016
15. mars
Vesturferð, rúta, einkabílar eða flug, sjá nánar að neðan.
19:00-20:00 Kvöldhressing á Fosshótel Vestfjörðum Patreksfirði
20:00 Fundarhöld: Aðalfundur Skógfræðingafélags Íslands - og eðalfundur Óskóg
16. mars
| Heiti erindis | Fyrirlesari |
09:00-09:05 |
Setning |
Sæmundur Þorvaldsson, Skjólskógum á Vestfjörðum |
09:05-09:15 |
Ávarp skógræktarstjóra |
Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri |
09:15-09:50 |
Leiðin frá París - Þáttur skógræktar í loftslagsmálum |
Hugi Ólafsson, umhverfis- og auðlindaráðuneyti |
09:50-10:20 |
Skógarvistkerfi og loftslagsbreytingar |
Bjarki Þór Kjartansson, Rannsóknastöð skógr. Mógilsá |
10:20-10:40 |
Kaffihlé |
|
10:40-11:00 |
Hvað getur íslensk skógrækt gert til að draga úr nettó-losun gróðurhúsaloftegunda á Íslandi? |
Arnór Snorrason, Rannsóknastöð skógræktar, Mógilsá |
11:00-11:20 |
Innihald og ferli landshlutaáætlana |
Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri |
11:20-11:40 |
Samtenging og notkun landupplýsinga |
Eydís Líndal Finnbogadóttir, Landmælingum Íslands |
11:40-12:00 |
LUK, verkfæri skógfræðingsins |
Björn Traustason, Rannsóknastöð skógræktar, Mógilsá |
12:00-13:00 |
Hádegisverður |
|
13:00-13:20 |
Þéttleiki og ending íslensks trjáviðar |
Sævar Hreiðarsson, Skógræktarfélagi Reykjavíkur |
13:20-13:40 |
Er íslenskur viður byggingarefni? |
Ívar Örn Þrastarson, skógfræðingur/húsasmíðameistari |
13:40-14:10 |
(Viður í byggingar framtíðar) |
Af sérstökum ástæðum ófrágengið |
14:10-14:40 |
Frá skógi til fóðurs |
Birgir Örn Smárason, Matvælastofnun |
14:20-14:50 |
Toppar og greinar út |
Bjarni Diðrik Sigurðsson, Landbúnaðarháskóla Íslands |
14:50-15:05 |
Skógmælingar með flygildum |
Lárus Heiðarsson, Skógrækt ríkisins Egilsstöðum |
15:00-15:30 |
Kaffihlé |
|
15:30-18:30 |
Skoðunarferð um Tálknafjörð og víðar |
|
19:30 ->>> |
Hátíðarkvöldverður í Félagsheimilinu |
|
17. mars
| Heiti erindis | Fyrirlesari |
09:00-09:30 |
Afforestation in Iceland, the use of Alaska tree seed material and why fish like forests |
Wade Wahrenbrock, Science Technical Forestry. Soldotna Alaska |
09:30-10:00 |
Skjólbelti framtíðar |
Samson B. Harðarson, Landbúnaðarháskóla Íslands |
09:40-10:00 |
Bíða nýir trjásjúkdómar eftir fari til landsins? |
Halldór Sverrisson, Rannsóknastöð skógr. Mógilsá |
10:00-10:20 |
Kaffihlé |
|
10:20-10:30 |
Gæða- og árangursmat í skógrækt |
Valgerður Jónsdóttir, Norðurlandsskógum |
10:30-10:50 |
Gæði skógarplantna, prófanir í RGC-borði |
Rakel Jónsdóttir, Norðurlandsskógum |
11:00-11:20 |
Kynbætt fura |
Brynjar Skúlason, Rannsóknastöð skógr. Mógilsá |
11:20-11:40 |
Er ofuröspin fundin? |
Arnlín Óladóttir, Skjólskógum á Vestfjörðum |
11:40-12:00 |
Langtímaáhrif alaskalúpínu og áburðargjafar á lifun og vöxt birkis |
Jóhanna Ólafsdóttir, Rannsóknastöð skógræktar, Mógilsá |
12:00-13:00 |
Hádegisverður |
|
13:00-13:20 |
From a deserted farm to a bountiful bread-basket |
Benjamin Dippo, Þingeyri (Agro-forestry Planner) |
13:20-13:40 |
Framtíðarverkefni skógarbænda |
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, Vesturlandsskógum |
13:40-15:00 |
Samantekt og kynning á næstu fagráðstefnu |
|
15:00 |
Ráðstefnuslit og brottfararkaffi |
Aðalsteinn Sigurgeirsson/Sæmundur Þorvaldsson |
Hvar, hvernig, hvað kostar?
Ráðstefnan fer fram í félagsheimilinu á Patreksfirði sem er um 200 metra gang frá Fosshótel Vestfjörðum Patreksfirði þar sem gert er ráð fyrir að flestir ráðstefnugestir muni gista.
Skráning á ráðstefnuna
Vinsamlega sendið skráningu á netfangið skjolskogar@skjolskogar.is eða hringið í síma 459-8201/893-1065. Við skráningu munu Skjólskógar sjá um að bóka gistingu á Fosshótel Vestfjörðum Patreksfirði og því þyrfti að fylgja ósk um hvort menn vilja eins eða tveggja manna herbergi og einnig hverjum þeim hugnast að deila herbergi með. Ef gistirými þrýtur á hótelinu verður haldið áfram að bóka á önnur gistiheimili á staðnum.
Kostnaður
Ráðstefnugjald 6.000 kr.
Nemendur LBHÍ þurfa ekki að greiða ráðstefnugjald.
Gisting og matur
Fosshótel Vestfirðir:
Gisting f. hvert herbergi (eins eða tveggja) með morgunmat: 11.400 kr. á sólarhring. (= 5.700 kr. á mann ef tveir eru í herbergi)
Matur á mann á ráðstefnutímanum: 7.280 kr. (kvöldhressing þann 15., 2 x hádegisverður, 2 x kaffi og með því + kaffi á ráðstefnutíma)
Hátíðarkvöldverður: 7.200 kr.
Hvernig komast menn á Patreksfjörð?
Þangað liggja auðvitað allar leiðir ...
Á eigin vegum:
Akstursleiðir: Reykjavík – Patreksfjöður er 400 km.
Akureyri – Patreksfjörður er 512 km (um Laxárdalsheiði)
Akstur og ferja:
Einnig má fara sjóveg yfir Breiðafjörð. Sá ferðamáti sparar hvorki peninga né tíma en er skemmtilegur.
Reykjavík-Stykkishólmur + Brjánslækur-Patreksfjörður: 172 + 56 = 228 km.
Akureyri-Stykkishólmur + Brjánslækur –Patreksfjörður: 363 + 56 = 419 km.
Flug:
Flugfélagið Ernir er með daglegar ferðir á flugvöllinn á Bíldudal. Þaðan er flugrúta á Patreksfjörð, 30 km.
Á vegum Suðurlandsskóga:
Suðurlandsskógar standa fyrir rútuferð vestur á Patreksfjörð 15. mars og til baka 17. mars. Lagt af stað 15. mars klukkan 12:00 frá Krónunni Selfossi, frá Olís Rauðavatni klukkan 12:45, frá Mógilsá klukkan 13:15 og frá Hyrnunni Borgarnesi klukkan 14:15
Til baka verður farið klukkan 15:15 fimmtudaginn 17. mars. Fróðleikur, gamanmál, sögur, upplestur og söngur. Þetta allt ásamt góðu sæti í ÞÁ-bíl kostar aðeins krónur 9.000 á farþega. Nánari upplýsingar og skráning hjá Hörpu Dís, harpadis@sudskogur.is, eða í síma s 899-9653.