Hæð: Miðlungs stórt tré, ætti að geta náð a.m.k. 20 m hérlendis
Vaxtarlag: Sæmilega beinvaxið með nokkuð breiða krónu og fær oftast slútandi greinar með aldrinum
Vaxtarhraði: Fremur hægur hjá norðlægum kvæmum
Landshluti: Um land allt
Sérkröfur: Ljóselsk tegund, þarf frjósaman jarðveg og sumarhlýindi til að ná góðum vexti
Styrkleikar: Formfegurð, hvítur börkur, haustlitir
Veikleikar: Oft seinvaxið, vorkal hjá norðlægum kvæmum, oft mikil afföll í æsku, trjámaðkur
Athugasemdir: Leit að góðu hengibjarkarkvæmi fyrir Ísland hefur ekki verið mjög ítarleg og enn hefur ekkert mjög vel aðlagað kvæmi fundist. Leitin heldur þó áfram. Hengibjörk er eitt áhugaverðasta lauftré til frekari notkunar í skógrækt á Íslandi.