Hæð: Miðlungsstórt tré, ætti að geta náð a.m.k. 15 m hérlendis
Vaxtarlag: Beinvaxið tré með keilulaga krónu
Vaxtarhraði: Hraðvaxnara en gráelri en vex þó hægt í mólendi
Landshluti: Sunnanvert landið
Sérkröfur: Sambúð við geislasvepp af ættkvíslinni Frankia, ljóselsk tegund
Styrkleikar: Niturbindandi, vex hratt, hugsanlega timburtré
Veikleikar: Fremur lítil reynsla enn sem komið er, haustkal, mikil afföll
Athugasemdir: Svartelri er víða í görðum en hefur ekki verið notað í skógrækt. Ekki hefur fundist nægilega vel aðlagað kvæmi svartelris, en ekki hefur verið mikið leitað.