Síðastliðinn föstudag (30/4) héldu Héraðsskógar fund með fulltrúum frá Félagi skógarbænda á Fljótsdalshéraði og Félagi skógarbænda á Austurlandi þar sem farið var yfir taxta sem framlög vegna framkvæmda ársins eru greidd eftir.  Almennt hækkuðu taxtarnir um 3,3 % í samræmi við launavísitölu, auk þess sem smávægilegar breytingar voru gerðar á girðingatöxtum og tímatöxtum.