Skógrækt ríkisins óskar eftir tilboðum í grisjun í Haukadalsskógi í Biskupstungum. Um er að ræða fimm aðskilda reiti sem skiptast í tvo sitkagrenireiti 0,85 og 2,2 ha að stærð, tvo reiti með stafafuru 0,64 og 0,52 ha og einn blandreit með sitkagreni og stafafuru 0,75 ha.

Tilboðið skal vera sundurliðað eftir reitum. Heimilt er að bjóða í útkeyrslu viðar með vagni úr reitunum. Tilboðum í grisjun og útkeyrslu skal haldið aðskildum. Heimilt er að skila inn frávikstilboðum.

Tilboðum skal skila á skrifstofu Skógræktar ríkisins í Gunnarsholti, 851 Hella fyrir 14.ágúst 2009. Tilboð verða opnuð á sama stað 14. ágúst kl. 10.00. Ekki eru gefnar upplýsingar um útboðið í síma en hægt er að óska eftir skýringum á útboðsgögnum með því að senda tölvupóst á hreinn(hjá)skogur.is eða lalli(hjá)skogur.is.

Skógrækt ríkisins áskilur sér rétt til að taka tilboðum að hluta eða í heild eða hafna öllum.