Í tilefni þess að Gunnar Freysteinsson, skógfræðingur, hefði orðið fertugur í ár boða Skógfræðingafélag Íslands, vinir og vandamenn til Gunnarshátíðar í Haukadal sunnudaginn 27. júní. Gunnar lést af slysförum árið 1998. Allir eru velkomnir á hátíðina.

 

Dagskrá:

11:00 - Gróðursetning og umhirða í Gunnarslundi.

13:00 - Skemmtun

Setning og ávarp: Aðalsteinn Sigurgeirsson, formaður Skógfræðingafélags Íslands.

Hugvekja sr. Sigvalda Ásgeirssonar, skógarprests

Skógarleikar (fyrir alla aldurshópa)

Samkomuslit: Ragnhildur Freysteinsdóttir

Tónlist: Nikulás Magnússon, harmonikka. Jón Ásgeir Jónsson, gítar.

 

Gestir eru beðnir um að hafa með sér trjá- eða greinaklippur, skóflur og fötur, sem og það nesti sem þeir vilja, en ketilkaffi verður á hlóðum á staðnum. Allir eru hvattir til að hafa með sér trjáplöntu, helst af fágætri tegund, hvort sem er barr- eða lauftré.