Ljósmynd: Héraðsskógar
Ljósmynd: Héraðsskógar

Reynsla fólks af Héraðsskógaverkefninu er mikilvægt dæmi um hvers konar bjargráð geta hentað í sveitum og eykur skilning á hvernig bjargráð eru mótuð og framkvæmd af fólki í samspili við formgerð samfélagsins. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri mannfræðirannsókn sem tíunduð er í þessu tölublaði af Riti Mógilsár.

Titill ritsins er Breytingar og bjargráð – aðferðir fólks í sveitum til að takast á við samfélagslegar breytingar. Fjallað er um samfélagslegar breytingar sem fólk í sveitum hefur staðið frammi fyrir. Lögð er áhersla á að skýra hvernig fólk mótar og beitir margvíslegum aðferðum til að takast á við þær.

Ritið er byggt á rannsóknarverkefni Gunnars Þórs Jóhannessonar til meistaraprófs í mannfræði við Félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Hér er fræðilegri umfjöllun haldið í lágmarki en áhersla lögð á umfjöllun um aðstæður og bjargráð íbúa í Fljótsdal.

Ritgerðin er byggð á vettvangsrannsókn sem fram fór í Fljótsdal á Héraði. Hún hefst á umræðu um lykilhugtök rannsóknarinnar sem varpa ljósi á aðstæður sem íbúar Fljótsdals þurfa meðal annarra að takast á við. Þau eru hnattvæðing, bjargráð og félagslegur auður. Hnattvæðing vísar til samfélagslegra breytinga sem er rammi ritgerðarinnar. Bjargráð og félagslegur auður fela í sér áherslu á nýsköpun, meðvitaða sköpun sjálfsmyndar og virkjun félagslegra tengslaneta og henta vel til skilnings og greiningar á aðstæðum og aðgerðum fólks.

Meginhluti ritgerðarinnar fjallar um breytingar á umhverfi sauðfjárræktar, breyttar aðstæður íbúa Fljótsdals og mismunandi bjargráð þeirra. Sérstaklega er fjallað um eitt tiltekið bjargráð, Héraðsskógaverkefnið. Héraðsskógar eru dæmi um byggðavænt nýsköpunarverkefni sem byggist m.a. á virkjun félagslegra tengsla og hagnýtingu félagslegs auðs. Að lokum eru niðurstöður dregnar saman. Sauðfjárræktarfólk tekst á við hnattrænar breytingar með margvíslegum bjargráðum. Reynsla fólks af Héraðsskógaverkefninu er mikilvægt dæmi um hvers konar bjargráð geta hentað í sveitum og eykur skilning á hvernig bjargráð eru mótuð og framkvæmd af fólki í samspili við formgerð samfélagsins.