Föstudaginn 11. júlí kl.12:00 verður haldinn skógardagur í Gunnarslundi í Haukadal. Eins og flestir vita þá var gróðursettur minningarlundur um Gunnar Freysteinsson og reist minningarsúla árið 1999 í Haukadal. Var þetta unnið í góðri samvinnu við ættingja Gunnars og vinnufélaga og vini hans í skógargeiranum.

Nú þarf að taka til hendinni í lundinum og verður megin verkefni dagsins að hlúa að plöntum og stígum í Gunnarslundi. Auk vinnunnar er markmið dagsins að ættingjar og vinir Gunnars taki þátt í ýmsum uppákomum sem verða m.a. trjámælingar í grenilundum undir dyggri stjórn Einars Gunnarssonar, farið verður í gegn um nýja þrautabraut í skóginum þar sem gestir geta spreytt sig á drumbakasti og fleiri skógaríþróttum. Auk þessa verður hellt upp á skógarkaffi og grillað í Haukadal og aldrei að vita nema einhver taki með sér söngbók (Aðalsteinn).

Fyrir hönd nefndarinnar þá vona ég að sem flestir sjái sér fært að mæta og gera lundinn hans Gunnars sem gróskulegastan.

Hreinn Óskarsson