Skógrækt ríkisins á Hallormsstað auglýsir í dag eftir tilboði í grisjun á 3.7 ha lerkiskógi á Hafursá.  Þetta mun vera í fyrsta skipti sem skógræktin býður út grisjunarvinnu. 

Er hér kærkomið tækifæri fyrir skógarbændur.  En á undanförnum árum hefur nokkur hópur skógarbænda í Héraðsskóga unnið við grisjun á hverjum vetri og hefur því góða reynslu af skógarhöggi.  Við hvetjum þá eindregið til að taka þátt í útboðinu. 

Hér má lesa auglýsinguna.