Ísland, Finnland og Skotland standa saman að þróunarverkefni í nýtingu viðar sem orkugjafa til húshitunar. Verkefnið er hluti af Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins (NPP).

Áherslur þjóðanna þriggja, sem að verkefninu standa, eru mismunandi enda aðstæður ólíkar.
Í Finnlandi framleiðir skógurinn um 20% af þeirri orku sem þar er notuð . Finnsku þátttakendurnir koma fyrst og fremst að verkefninu sem ráðgjafar.
Skotland hefur gríðarlegra hagsmuna að gæta. Þar er orkuverð hátt og dreifikerfi raforku er að verða of lítið fyrir fyrirsjáanlega orkunotkun. Skotar eiga ennfremur mikið hráefni í skógum sem ekki hentar vel í annan iðnað.
Á Íslandi er þörf fyrir markað fyrir grisjunarafurðir bændaskógræktarinnar. Tilgangur verkefnisins hér á landi er að gera viðarkyndingu að raunhæfum valkosti á lághitasvæðum, einkum í dreifbýli. Með því viljum við slá nokkrar flugur í einu höggi, þ.e.

1. Lækka orkukostnað neytenda.
2. Stuðla að grisjun ungskóga og gera þá verðmætari.
3. Fjölga atvinnutækifærum í dreifbýli.
4. Nýta umhverfisvæna orku.

Íslensku þátttakendurnir í þessu verkefni eru Héraðsskógar, Skógrækt ríkisins á Hallormsstað og Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri og leggja þessir aðilar fjármagn og vinnu til verkefnisins. Auk þess eru Orkusjóður, NPP, Byggðastofnun og Framleiðnisjóður Landbúnaðarins fjárhagslegir bakhjarlar.

Verkefninu verður ýtt úr vör um miðjan mánuðinn og hefur okkur hlotnast sá heiður að halda stofnfundinn hér á landi. Kynning á verkefninu verður í Gistihúsinu á Egilsstöðum þriðjudaginn 16. nóvember, kl. 15 og eru allir velkomnir.