(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir)
(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir)

Á morgun verða auglýst ný sumarstörf fyrir námsmenn og atvinnuleitendur. Í boði verða störf við grisjun og ýmis tilfallandi verkefni í Þjóðskógum landsins auk fjölbreyttra starfa við Rannsóknastöð skógræktar á Mógilsá.

Þessi störf eru hluti af metnaðarfullu atvinnuátaksverkefni stjórnvalda fyrir námsmenn og atvinnulausa, þar sem 856 ný störf eru auglýst laus til umsókna, þar af 337 störf í þágu umhverfis og náttúru á Íslandi. Um er að ræða störf hjá stofnunum umhverfisráðuneytisins og ráðuneytinu sjálftu og eru störfin því gríðarlega fjölbreytt. Sum störfin gera ráð fyrir tiltekinnni menntun eða sérhæfingu en önnur felast í útiverkefnum þar sem tækifæri gefst á að kynnast landinu og vinna því gagn með ýmsu móti.


Hægt verður að sækja um störfin frá og með 12. maí á vef Vinnumálastofnunar.

Sumarstörfin sem í boði verða hjá Skógrækt ríkisins

Sumarstörf fyrir ófaglærða

Lýsing:

Skógrækt ríkisins óskar eftir ráða sumarstarfsfólk til fjölbreyttra starfa í Þjóðskógum landsins. Um er að ræða verkamanastörf undir handleiðslu flokksstjóra og mun starfsfólk verða þjálfað til að takast á við viðkomandi verkefni.

Helstu verkefni:
  • Gróðursetning og áburðargjöf
  • Gönguleiða og stígagerð
  • Skógarumhirða
  • Annað tilfallandi
Eiginleikar:
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, samstarfslipurð og þjónustulund
  • Kostur er að hafa bílpróf
Staðsetning:

Skógrækt ríkisins rekur starfsstöðvar í öllum landshlutum.  Í einhverjum tilvika gæti starfsfólk þurft að gista í húsnæði stofunarinnar í Þjóðskógunum.

Sumarstörf við grisjun

Lýsing:

Skógrækt ríkisins óskar eftir ráða sumarstarfsfólk til að starfa við grisjun í Þjóðskógum landsins. Um er að ræða starf við grisjun með keðjusög undir handleiðslu verkstjóra og mun starfsfólk verða þjálfað til að takast á við viðkomandi verkefni.

Helstu verkefni:
  • Grisjun með keðjusög
  • Útkeyrsla viðar
  • Viðarvinnsla
Eiginleikar:
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, samstarfslipurð og þjónustulund.
  • Gott líkamlegt atgervi
  • Bílpróf
  • Reynsla af vinnu við vélar kostur.
Staðsetning:

Skógrækt ríkisins rekur starfsstöðvar í öllum landshlutum.  Í einhverjum tilvika gæti starfsfólk þurft að gista í húsnæði stofunarinnar í Þjóðskógunum.

Sumarstörf við rannsóknir

Lýsing:

Skógrækt ríkisins óskar eftir ráða sumarstarfsfólk til fjölbreyttra starfa við Rannsóknastöð skógræktar á Mógilsá. Störfin verða unnin undir leiðsögn sérfræðinga og staðarhaldara á Mógilsá. Stúdentar í háskólanámi og fólk með háskólagráðu í náttúru- og raunvísindum nýtur forgangs.

Helstu verkefni:
  • Aðstoða við rannsóknaverkefni bæði útivið og innivið
  • Aðstoð við mælingar á tilraunum og úttektum
  • Aðstoð við úrvinnslu gagna og sýna
  • Aðstoða við umhirðu umhverfis á Mógilsá
  • Umhirða trjágróðurs
  • Umhirða og merkingar á trjásafni
  • Lagfæring stíga í trjásafni
Eiginleikar:
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, samstarfslipurð og þjónustulund
  • Að hafa lokið eða vera í háskólanámi
Staðsetning:
 Rannsóknastöð skógræktar á Mógilsá