Skógrækt og trjárækt í og við þéttbýli stuðlar að aukinni útivist, hreyfingu og vellíðan íbúanna; eykur þar með lýðheilsu. Á ráðstefnunni „Skógar í þágu lýðheilsu á Íslandi“ sem haldin verður n.k. laugardag, 11. mars, verður sjónunum beint að hlutverki skóga í því að bæta lýðheilsu, með því að tilvist þeirra eykur og bætir útivistarmöguleika almennings í landinu. Ráðstefnan verður haldin í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands og hefst hún kl. 13:00.

Ráðstefnan er á vegum Rannsóknastöðvar skógræktar á Mógilsá, Skógræktarfélags Íslands og Skógræktarfélags Reykjavíkur.

Ráðstefnan er haldin í tengslum við fulltrúafund skógræktarfélaganna.

Ráðstefnan er öllum opin og er aðgangur ókeypis.

Ráðstefnustjórar:
Þuríður Yngvadóttir í stjórn Skógræktarfélags Íslands og Aðalsteinn Sigurgeirsson, varaformaður Skógræktarfélags Reykjavíkur

Dagskrá

13:00
Setning: Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra

Stefnumörkun og skipulag
13:15
Gunnar Einarsson, varaformaður SSH, bæjarstjóri Garðabæjar: Skógrækt frá sjónarhóli bæjarstjóra
13:30
Brynjólfur Jónsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands: Skógræktarfélög og Grænir treflar
Lýðheilsa
13:45
Anna Björg Aradóttir, yfirhjúkrunarfræðingur hjá Landlæknisembættinu: Hafa skógar áhrif á heilsufar fólks?
14:00
Sigrún Gunnarsdóttir, varaformaður Félags um lýðheilsu og fulltrúi félagsins í Landsnefnd um lýðheilsu: Heilsa í skógi
14:15
Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri hreyfingar hjá Lýðheilsustöð: Skógrækt er heilsurækt – Hreyfing í fallegu umhverfi og fersku lofti
14:30
Ingólfur S. Sveinsson geðlæknir: Skógur til að rækta fólk
14:45
Fyrirspurnir
15:00
Kaffihlé

Þéttbýlisskógar og notkun þeirra
15:30
Sherry Curl mannfræðingur og Hrefna Jóhannesdóttir, skógfræðingur hjá Skógrækt ríkisins: Viðhorf og notkun Íslendinga á skógum
15:45
Ellý Katrín Guðmundsdóttir, sviðsstjóri Umhverfissviðs Reykjavíkur: Náttúra í borg
16:00
Herdís Friðriksdóttir skógfræðingur og Ólafur Erling Ólafsson skógarvörður hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur: Hvernig er Heiðmörk í stakk búin að þjóna lýðheilsu? Hverju er ábótavant?
16:15
Jón Geir Pétursson, skógfræðingur hjá Skógræktarfélagi Íslands og Aðalsteinn Sigurgeirsson, forstöðumaður Rannsóknastöðvar skógræktar á Mógilsá: Skógrækt og útivist. Straumar og stefnur í Evrópu
16:30
Desiree Jacobsson, verkefnisstjóri hjá sænsku skógarstjórninni (Skogstyrelsen): Skógar og endurhæfing. Reynsla Svía (Forests for Rehabilitation using the Greenstages Model). [Erindi flutt á ensku]
16:50
Fyrirspurnir
17:15
Dagskrárlok