Hæð: Stórvaxið tré í heimkynnum sínum, óvíst með hæð hérlendis
Vaxtarlag: Einstofna tré með breiða, keilulaga krónu
Vaxtarhraði: Hægur hérlendis
Hvaða landshluta: Einkum um sunnanvert landið
Sérkröfur: Þarf skjól í æsku, helst skerm hávaxnari trjáa, þarf frjósaman jarðveg
Styrkleikar: Skuggþolin tegund
Veikleikar: Haustkal, ekki frumherjategund
Athugasemdir: Nordmannsþinur er jólatréð sem mest er flutt inn og því sá þinur sem hvað flestir Íslendingar kannast best við. Hann er almennt of suðlægur fyrir okkar skógrækt en örfá tré eru að komast á legg, t.d. á Mógilsá og Stálpastöðum. Tegundin er nefnd eftir finnska náttúrufræðingnum Alexander von Nordmann (1803–1866), prófessor í grasafræði í Oddessa Rússlandi og forstöðumaður grasagarðsins í Odessa. Því er rétt að skrifa heiti tegundarinnar með d en ekki ð eins og gjarnan er gert