Staðfestir fundarstaðir birkiþélu haustið 2017. Grunnmynd: Landmælingar Íslands
Fyrirbyggjandi aðgerðir bestar
Rétt val á efniviði í skógrækt og fjölbreytni eru mikilvægir þættir til að draga úr hættunni af skemmdum vegna meindýra og sjúkdóma á trjám. Fyrirbyggjandi aðgerðir eru þó bestar að mati þriggja sérfræðinga á Rannsóknastöð skógræktar Mógilsá, þeirra Brynjars Skúlasonar, Brynju Hrafnkelsdóttur og Halldórs Sverrissonar. Þau mæla til dæmis með því að fólk þrífi skó sem gengið hefur verið á í erlendum skógum. Jafnframt vara þau við innflutningi plantna til landsins.
Þau hafa skrifað á skaðvaldavef Skógræktarinnar fróðleik um varnir gegn innflutningi nýrra meindýra og sjúkdóma, innflutningsleiðir og fleira. Þar segir eftirfarandi:
Fyrirbyggjandi aðgerðir eru bestar gegn skaðvöldum í trjám
Í fyrsta lagi skal bent á að velja gróður sem hentar vel aðstæðum því ella er hann auðveld bráð meindýra og sjúkdóma. Sem dæmi um þetta má nefna að flestallir asparklónar eru mjög viðkvæmir fyrir asparryði en þó má finna klóna sem verjast sjúkdómnum allvel. Brýnt er að auka úrval á slíkum efniviði með kynbótum og er unnið að því á Rannsóknastöðinni.
Einnig er nauðsynlegt að þekkja óvininn og forðast að gróðursetja á sama svæði trjátegundir ef nábýli þeirra magnar upp sjúkdóma eða skaðvalda. Dæmi um slíkt væri lerki í nágrenni við ösp því ryðsveppurinn asparryð nýtir lerki sem millihýsil á þroskaferli sínum.
Þá má nefna að fjölbreytni í skógrækt er afar mikilvæg til að draga úr áföllum. Það dregur úr áhættu, auk þess sem meira er af náttúrlegum óvinum í skógum þar sem fjölbreytni er mikil og það dregur úr hættu á meindýrafaröldrum.
Ef allt um þrýtur er hægt að grípa til varnarefna. Töluvert úrval er af efnum sem henta til eyðingar á sveppasýkingum og meindýrum í trjám. Þess ber að gæta að beita slíkum efnum af varúð og úða ekki nema full þörf sé á. Rétt er að minna á að alltaf má búast við ákveðnum skemmdum af völdum skordýra og sjúkdóma, án þess að ástæða sé til þess að grípa til varnarefna. Einnig ber að hafa það í huga að flest varnarefni eru ekki sérvirk á skaðvalda, þ.e. þau hafa líka áhrif á aðrar lífverur í umhverfi trjáa, þar með talið dýr og sjúkdóma sem halda skaðvöldum í skefjum. Þannig getur notkun varnarefna dregið úr náttúrlegum viðnámi vistkerfisins. Ef ljóst er að notkun varnarefna er nauðsynleg, verður aftur að hafa í huga að þekkja óvininn þannig að úðað sé á réttum tíma til að efnið gagnist sem best. Einnig má benda á að notkun óhefðbundinna varnarefna, eins og grænsápu, hefur í sumum tilfellum reynst vel gegn skaðvöldum.
Varnir gegn innflutningi nýrra meindýra og sjúkdóma
Ísland er einangruð eyja og lífríkið hér ber þess merki. Einangrunin hefur bæði kosti og galla. Auðveldara er að koma í veg fyrir innflutning, bæði vegna fjarlægðar við önnur lönd og eðlis landamæranna. Gallarnir eru þeir að lífríkið er enn þá viðkvæmara en ella fyrir nýjum skaðvöldum ef þeir berast hingað. Margar plöntutegundir hafa til að mynda fengið að vaxa hér lengi í friði og því ekki þróað öflugar varnir gegn nýjum skaðvöldum. Einnig er líklegt að náttúrulegir óvinir viðkomandi skaðvalds hafi ekki borist til landsins og því verður skaðinn oft miklu alvarlegri en í heimalandi hans þar sem náttúrulegir óvinir halda stofninum niðri.
Í nútímasamfélagi þar sem mikið er um ferðalög og vöruflutning á milli landa eru margar leiðir fyrir skaðvalda að berast á milli landa. Flutningur lifandi plantna felur í sér mestu hættuna. Til að mynda eru nýir skaðvaldar sem flust hafa frá Asíu og Ameríku byrjaðir valda miklum skaða í skógrækt í nágrannalöndum okkar í Evrópu, samfara auknum meðalhita og auknum samgöngum á milli landa. Ef skaðvaldur berst til landsins er mjög mikilvægt að hann uppgötvist snemma svo möguleiki sé að uppræta hann, áður en hann nær að nema hér land og fjölga sér. Því miður er raunin oft sú að skaðvaldur uppgötvast ekki fyrr en hann hefur dreift sér töluvert og því er mikilvægt að allir séu vakandi og tilkynni strax ef þeir telja sig hafa fundið nýjan skaðvald. Brynja Hrafnkelsdóttir (brynja@skogur.is) og Halldór Sverrisson (halldor@skogur.is) hjá Rannsóknastöð skógræktar Mógilsá taka við öllum slíkum ábendingum.
Dæmi um algengar flutningsleiðir skaðvalda
Lifandi plöntur
Mikil hætta er á að skaðvaldar berist til landsins með lifandi plöntum og í jarðvegi ef hann fylgir plöntunni. Á Íslandi er bannað að flytja inn lifandi plöntur þeirra 7 trjáættkvísla sem þykja mikilvægastar í íslenskri skógrækt (reglugerð nr. 189/1990). Þessar ættkvíslir eru álmur (Ulmus spp.), birki (Betula spp.), fura (Pinus spp.), greni (Picea spp.), lerki (Larix spp.), víðir (Salix spp.) og ösp (Populus spp.). Einnig er bannað að flytja inn barrtré frá löndum utan Evrópu, plöntur af ættkvíslinni þinur (Abies spp.) til áframhaldandi ræktunar og villtar plöntur af víðavangi. Nýir skaðvaldar sem lifa á trjáplöntum geta þó borist hingað með öðrum plöntutegundum sem leyfilegt er að flytja inn. Mikilvægt er að allir fari eftir reglum um innflutning plantna til að minnka líkurnar á að erlendir skaðvaldar nái að komast hingað og nema land.
"> Sitkalýs á greninál. Staðfest er að sitkalús barst til Íslands með innfluttum jólatrjám. Mynd: Edda S. Oddsdóttir.
Með jólatrjám
Þó að bannað sé að flytja inn lifandi tré okkar helstu trjátegunda í skógrækt eru gefnar undanþágur ár hvert til innflutnings á nokkrum rauðgrenitrjám. Leyfilegt er að flytja inn aðrar tegundir og er þinur sú ættkvísl sem mest er flutt inn af. Sjaldan er vitað hvaða leið skaðvaldur hefur borist til landsins en þó er staðfest að sitkalúsin (Elatobium abietinum) barst með þessum hætti til til Íslands.
Viður
Skaðvaldar geta borist milli landi með viði en hættan er mest ef viðurinn er enn þá með berki. Þess vegna gilda sömu innflutningsreglur um við með áföstum berki og lifandi plöntur, þ.e.a.s. að bannað er að flytja inn við sem unninn er úr álmi, birki, furu, greni, lerki, víði eða ösp ef á honum er börkur.
Ýmsar viðarafurðir
Skaðvaldar geta borist með ýmsum viðarumbúðum og afurðum, til dæmis vörubrettum, vöruumbúðum, húsgögnum, viðarkurli og listmunum. Til að mynda er þessi flutningsleið talin vera eins sú algengasta fyrir nýja skaðvalda inn í Evrópu.
Með ferðamönnum
Skaðvaldar geta borist með ferðamönnum. Því er til dæmis mikilvægt að þrífa skó sína vel eftir á þeim hefur verið gengið í erlendum skógum.
Í gámum
Þegar vörur eru fluttar í gámum á milli landa geta ýmsir laumufarþegar fylgt með.
Með vindi
Ár hvert flækjast hingað nokkrar tegundir skordýra með vindi. Sjaldgæfara er þó að þær nemi hér land.
Reglur um innflutning á plöntum
Tengt lesefni og heimasíður