Þátttakendur í heimsmóti skáta 2017 við gróðursetningu í landi Skógræktarfélags Íslands að Úlfljótsvatni. Mynd: Borja Rodríguez Herrero.
45.000 tré gróðursett á Eskifirði og við Úlfljótsvatn á þremur árum
Bandarísku skógverndar- og skógræktarsamtökin American Forests hafa tekið saman höndum með Skógræktarfélagi Íslands um gróðursetningu 15.000 trjáplantna á Íslandi í þrjú ár, alls 45.000 plöntur. Gróðursett erá tveimur stöðum, á Eskifirði og við Úlfljótsvatn.
Þetta verkefni er hluti af víðtækara samstarfi American Forests við sjóðinn Alcoa Foundation. Samtökin American Forests hafa starfað að skógverndar- og skógræktarmálum í yfir 140 ár. Þetta eru ein elstu, ef ekki elstu, náttúruverndarsamtök í Bandaríkjunum og ef aðeins er litið til ársins 1990 hafa til þessa dags verið gróðursettar yfir 50 milljónir trjáplantna á vegum samtakanna sem stuðlað hafa að endurhæfingu skóglendis í öllum 50 ríkjum Bandaríkjanna og nærri 50 öðrum löndum í heiminum.
Á hverju ári eru gróðursettar milljónir trjáplantna á vegum American Forests með stuðningi almennings, sjóða, fyrirtækja og stofnana. Stórfyrirtæki á borð við Alcoa, Bank of America og fleiri styðja stór verkefni á vegum samtakanna sem leitt hafa af sér endurhæfingu skóglendis á tugum, ef ekki hundruðum þúsunda hektara með tilheyrandi jákvæðum áhrifum á vistkerfi, vatnasvið og annað sem skógurinn leiðir af sér. American Forests vinna líka að því að hvetja til aukinnar notkunar trjágróðurs í þéttbýli til að gera þéttbýlislífið sjálfbærara, umhverfið fallegra og byggilegra.
Sem fyrr segir hafa samtökin American Forest nú samstarf við Skógræktarfélag Íslands, sem einnig eru rótgróin samtök og með elstu náttúruverndarsamtökum á Íslandi, stofnuð 1930. Félagið er móðurfélag skógræktarfélaga um allt land og markmið þess er að auka áhuga landsmanna á skógrækt, stuðla að skógræktarverkefnum og eflingu landgæða. Við Úlfljótsvatn er gróðursett á landi í eigu Skógræktarfélags Íslands en verkefnið á Eskifirði er unnið í samvinnu við Skógræktarfélag Eskifjarðar. Áður hefur Skógræktarfélag Íslands fengið stuðning úr þessari sömu átt, fyrst 2011 og aftur 2015, þá í samstarfi við Skógræktarfélag Reyðarfjarðar.
Nú þegar hafa verið gróðursett 15.000 tré á þessum tveimur svæðum fyrir tilstilli þessa verkefnis. Fram kemur í frétt á vef American Forests að gróðursett sé í land sem eitt sinn hafi verið vaxið birkiskógi. Slíkar aðgerðir séu nauðsynlegar á Íslandi, ekki aðeins til að trjáræturnar bindi jarðveginn og komi í veg fyrir rof heldur verji skógur landið fyrir áföllum af völdum ösku- og gjóskufalls í eldsumbrotum.
Sjálfboðaliðar vinna að þessum verkefnum og í sumar sáu sjálfboðaliðar European Voluntary Service um mestalla gróðursetninguna á Eskifirði ásamt heimafólki úr Skógræktarfélagi Eskifjarðar og Jóni Ásgeiri Jónssyni, starfsmanni Skógræktarfélags Íslands. Við Úlfljótsvatn gróðursettu sjálfboðaliðar frá sömu samtökum einnig í sumar auk þess sem hluti plantnanna var nýttur í gróðursetningu með fulltrúum frá sendiráði Bandaríkjanna og með skátum á heimsmóti skáta sem haldið var á Úlfljótsvatni í sumar. Þar tók einn sjálfboðaliðanna, Borja Rodríguez Herrero, meðfylgjandi mynd af tveimur þátttakendum í heimsmótinu.
Skógareyðing hefur verið í gangi á Íslandi frá landnámi með þeim afleiðingum að trjágróður vex aðeins á um tveimur prósentum landsins. Í verkefninu sem American Forests styrkja með hjálp frá Alcoa Foundation er markmiðið að rækta upp birkiskóga á ný og verja þá skógrækt sem fyrir er á svæðunum tveimur. Með girðingum er skóglendið varið fyrir sauðfjárbeit og ýtt undir sjálfgræðslu skóga einnig.
Texti: Pétur Halldórsson
Mynd: Borja Rodríguez Herrero