(Spurning á vísindavef HÍ)

Birki (Betula pubescens) er eina innlenda trjátegundin sem hefur myndað skóga á Íslandi á núverandi hlýskeiði (síðustu 10.000 árinn). Það hefur verið áætlað að birkiskógar og kjarr hafi þakið meira en fjórðung landsins við landnám eða um 28.000 km2, áætlaða útbreiðslu má sjá á eftstu myndinni. Lítið er nú eftir af þessum skóglendum og þekja þeir í dag um 1% af yfirborði landsins, og að mestum hluta er um kjarr að ræða. Samvinna margra ólíkra þátta er megin ástæðan fyrir skógareyðingunni, má þar nefna áhrif manna, veðurfar og jarðhræringar (mynd fyrir miðju).

Þar sem skógarleifar finnst enn í dag (neðsta myndin) hefur líklega verið skógur eða skógarleifar stærsta hluta tímans frá landnámi, en ekki er hægt að segja að eiginlegur ?landnámsskógur? sé varðveittur þar sem birkiskógurinn endurnýjar sig frekar hratt.  Birki verður sjaldan eldra en 150 ára gamalt.  Þar sem skógurinn endurnýjar sig oft með rótarskotum getur verið að einstakir einstaklingar birkis séu margra alda gamlir, þ.e. rótin getur hafa lifað í margar aldir.

 Höfundar svars :

Ólafur Eggertsson og Bjarki Þór Kjartansson

Rannsóknastöð skógræktar Mógilsá