Mánudaginn 30. ágúst verður haldinn fræðslufundur á Hótel Héraði, Egilsstöðum með yfirskriftinni; skjól - skógur - skipulag
Framsögumaður er Alexander Robertsson skógfræðingur.  Þröstur Eysteinsson þróunarstjóri Skógræktar ríkisins mun túlka fyrirlesturinn.

Skógarbændur eru hvattir til að mæta.

Dagskrá:

17.00 Alexander Robertson skógfræðingur (PhD)  frá Kanada  -   ?Wind patterns - visualiztion ?  shelterbelts design features
18.00 Umræður og kaffihlé
18.30  Málþingi lýkur 

Markmið fræðslufundarins:
Að efla  umræðu og fræðslu um mikilvægi  samspils  skipulags skógar og skjóls.
Að gefa þeim aðilum er vinna að og hafa áhuga á skipulagsmálum tækifæri til að auka við þekkingu sína  á  hlutverki skjólbelta og trjágróðurs til skjóls
Að gefa þeim aðilum  er vinna að og hafa áhuga á skógrækt og skjólbeltagerð tækifæri til að auka við þekkingu sína á skipulagsmálum og samspili skipulags,  skjólbelta og trjágróðurs
Að gefa skipulagsfólki og skógræktarmönnum tækifæri til að hittast, fræðast og skiptast á skoðunum.


Alexander (Sandy) Robertson, skógfræðingur (PhD) er Íslendingum að góðu kunnugur.  Hann kom fyrst hingað til lands 1963 og hefur verið ráðgjafi í mörgum skógræktarverkefnum hér á landi m.a. asparverkefni í Gunnarsholti, og  Skjólskógum á Vestfjörðum.
Heimaland Sandys er Skotland, þrátt fyrir að hann hafi búið og starfað í áratugi á Nýfundnalandi.
Hann er skógfræðingur að mennt (PhD) og hefur unnið bæði fyrir ríkisskógræktina í Kanada og sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi, en áhugasvið hans og jafnframt efni doktorsritgerðar er áhrif vinds, skjólmyndun við þéttbýli og skjólbelti og landslag.