Laugardaginn 26. júní kl. 14-16 verður opnunarhátíð Opins skógar á

Snæfoksstöðum.

 

Opinn skógur er samstarfsverkefni skógræktarfélaganna, Olís og Alcan á

Íslandi er miðar að því að opna skóga og gera þá aðgengilega. Lögð er

áhersla á upplýsingar um lífríki, náttúru og sögu viðkomandi svæðis. Með

öflugum stuðningi - Olís og Alcan á Íslandi - opnast spennandi áningarsvæði

fyrir almenning.

 

Hátíðarhöldin verða skammt austan Grímsnessafleggjarans til Þingvalla skammt

frá Kolgrafarhól, við nýja aðkomu á Biskupstungnabraut.

 

Siv Friðleifsdóttir Umhverfisráðherra mun opna skóginn að hætti skógarmanna.

Boðið verður upp á hljóðfæraleik og léttar veitingar og gengið verður á

Kolgrafarhól. Þar hefur verið komið fyrir útsýniskífu, enda afar víðsýnt og

fagurt um að líta.

 

Skógræktarfélag Árnesinga keypti jörðina Snæfoksstaði árið 1954 og hófst þá

þegar handa við gróðursetningu. Jörðin er um 750 ha og er þar vaxin upp

skógur á hundruðum ha og blasir hann að nokkru við vegfarendum.

 

Verið velkomin(n)

 

OPINN SKÓGUR

á Snæfoksstöðum í Árnessýslu

laugardaginn 26. júní kl. 14 - 16

 

Dagskráin verður við Kolgrafarhól við Biskupstungnabraut

 

Dagskrá

 

Tónlist - Jóhann Stefánsson hornablásari

 

Ávörp

Formaður Skógræktarfélags Árnesinga

Óskar Þór Sigurðsson

Fulltrúi Alcan á Íslandi Lind Einarsdóttir,

fulltrúi Olís Ingvar Guðmundsson útibússtjóri

Magnús Gunnarsson fulltrúi Skógræktarfélags Íslands

 

Umhverfisráðherra Siv Friðleifsdóttir opnar skóginn að hætti skógarmanna

 

Gengið á Kolgrafarhól

 

Léttar veitingar