Eplatré í blóma í mið-evrópskum skógi.
Umsóknarfrestur til 11. júlí
Skógræktin óskar að ráða til sín fagmálastjóra. Leitað er að öflugum einstaklingi sem hefur víðtæka þekkingu á skógrækt innanlands og utan og er tilbúinn til að takast á við umfangsmikil verkefni í krefjandi og breytilegu umhverfi. Fagmálastjóri heyrir beint undir skógræktarstjóra og verður hluti af framkvæmdaráði stofnunarinnar.
Helstu verkefni fagmálastjóra:
- Er staðgengill skógræktarstjóra
- Mótar, leiðir eða tekur þátt í verkefnum um framþróun skógræktarstarfsins
- Ber ábyrgð á þróun erlends samstarfs í samvinnu við skógræktarstjóra, sviðstjóra og aðra starfsmenn stofnunarinnar.
- Tekur þátt í stefnumörkun í skógrækt ásamt skógræktarstjóra, sviðstjórum Skógræktarinnar og fleiri aðilum
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur og eiginleikar:
- Að lágmarki meistaragráða í skógfræði og víðtæk þekking á skógrækt innanlands og utan.
- Hugmyndaauðgi
- Færni í að koma upplýsingum frá sér í rituðu og töluðu máli
- Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
- Skipulag, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr 70/1996.
Umsóknarfrestur er til og með 11. júlí nk. Starfið er á aðalskrifstofu Skógræktarinnar eða annarri starfstöð stofnunarinnar eftir samkomulagi. Vinsamlega sendið umsóknir ásamt ferilsskrá og staðfestingu á menntun á heimilisfang aðalskrifstofu:
Skógræktin, b/t skógræktarstjóra
Miðvangi 2-4
700 Egilsstöðum
Nánari upplýsingar veita: Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri (throstur@skogur.is) eða Gunnlaugur Guðjónsson fjármálastjóri (gulli@skogur.is)
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við hvetjum bæði karla og konur til að sækja um starfið.
Skógræktin er ný ríksstofnun sem formlega verður til 1. júlí 2016 við sameiningu Skógræktar ríkisins og landshlutaverkefna í skógrækt. Á komandi mánuðum verða innleiddar breytingar á starfseminni í átt að betri árangri í skógræktarstarfinu. Sviðstjórar Skógræktarinnar vinna að innleiðingu breytinganna ásamt fagmálastjóra og skógræktarstjóra.
Hlutverk Skógræktarinnar er að hafa forystu um uppbyggingu skógarauðlindar á Íslandi með því að kalla eftir víðtækri samvinnu við skógargeirann, vinna að verndun og friðun skóga og kalla fram hagrænan, umhverfislegan og samfélagslegan ávinning af sjálfbærri nýtingu skóga.
Skógræktin rækir hlutverk sitt með því að veita framlög og ráðgjöf til skógræktenda, reka þjóðskógana, sinna rannsóknum og hafa forystu um að afla og miðla þekkingu á skógrækt á Íslandi. Jafnframt með því að hvetja til og eftir atvikum leiða samvinnu og ráðgjöf á sviði skógræktar á Íslandi með áherslu á sjálfbærni, eflingu byggðar, verðmætasköpun og mótvægisaðgerðir vegna loftslagsbreytinga.