Hluti forsíðu 50. tölublaðs Rits Mógilsár
Í nýútkomnu tölublaði Rits Mógilsár eru birtar niðurstöður úr nýlegum mælingum á svokallaðri Rarik-tilraun sem sett var út fyrir aldarfjórðungi með fimmtíu birkikvæmum. Í ljós kemur að birki frá Suðausturlandi myndar mest fræ og hefur mest þol gegn birkiryði. Sunnlenskt birki hefur líka yfirburði í vexti og lifun. Höfundar telja að vinna ætti áfram með þann kynbótaávinning sem þegar hefur náðst svo þróa megi birki sem hentar almennt á láglendi Íslands.
Titill greinarinnar er Ræktunaröryggi, vöxtur, fræmyndun og heilbrigði kvæma íslensks birkis. Höfundar eru Brynjar Skúlason og Brynja Hrafnkelsdóttir, sérfræðingar á rannsóknasviði Skógræktarinnar, ásamt Aðalsteini Sigurgeirssyni, fagmálastjóra Skógræktarinnar, sem raunar vann að tilrauninni í upphafi og stýrði m.a. fræsöfnun af þeim kvæmum sem notuð voru.
Í útdrætti greinarinnar er bent á að íslensku birkiskógarnir séu breytilegir að hæð og gerð og erfitt geti reynst að greina hvað þar ræður mestu, arfbundnir eiginleikar eða staðbundnar umhverfisaðstæður. Betri vitneskja um þetta er dýrmæt. Vorið 1998 var því sett út kvæmatilraun með 50 kvæmum, gróðursett á níu mismunandi tilraunastaði og voru fimm þeirra mældir árin 2020 og 2021. Hæð og þvermál plantnanna var mælt auk þess að lifun, ryðmyndun og fræmagn var metið.
Sunnlenskt birki með yfirburði
Þessar nýju mælingar leiddu í ljós jákvæða fylgni fyrir alla eiginleika í einkunnum kvæma milli tilraunastaða og oftar en ekki var fylgnin marktæk sem bendir til að eiginleikarnir stýrist af arfgerð fremur en umhverfi. Mjög góð fylgni fannst á milli sunnlensku tilraunastaðanna í lifun, þar sem kvæmið Steinadalur er afgerandi best og kvæmin frá Suðaustur- og Suðvesturlandi raðast nánast öll fyrir ofan kvæmin frá Norðaustur- og Norðvesturlandi. Röðun kvæma í lifun er breytilegri á tilraunastöðum á Norðurlandi og á Vestfjörðum.
Bæjarstaðabirki og skyldir stofnar reyndust almennt hafa mestan lífmassa og kvæmin frá Suðaustur- og Norðausturlandi hafa fæsta aukastofna. Skýrustu niðurstöðurnar eru fyrir fræmyndun og ryðþol þar sem birkið frá Suðausturlandi hefur yfirburði í ríkulegri fræmyndun og besta þolið gagnvart birkiryði. Við notkun birkis fyrir láglendi Íslands telja höfundar að nýta megi þann kynbótaávinning sem yrkið Embla sýnir og auka erfðabreytileikann með því að bæta klónum inn í þýðið frá kvæmum sem koma vel út í tilrauninni s.s. Steinadal, Þingvöllum, Þórsmörk og Bæjarstað.
Í niðurstöðukafla greinarinnar má sjá gröf sem varpa góðu ljósi á mun milli kvæma og tilraunastaða. Í umræðukaflanum eru niðurstöðurnar reifaðar og koma skýrt í ljós yfirburðir sunnlensku birkikvæmanna í bæði lifun og vexti óháð landshlutum. Niðurstöður staðfesta að Bæjarstaðabirki og skyldir stofnar hafa víðtækt notagildi þar sem rækta skal hávaxna birkiskóga með mikinn vaxtarþrótt. Steinadalsbirkið (úr Suðursveit) virðist þrífast vel víða um land og hentar vel þar sem áhersla er á góða lifun og mikla fræmyndun. Kvæmin Þingvellir og Þórsmörk virðast lífseig og þróttmikil og henta e.t.v. betur en annað birki inn til landsins á Norðausturlandi og Vestfjörðum en ekki eru mörg dæmi um að það hafi verið reynt. Norðlenskt birki telja höfundar að ætti fyrst og fremst að nota á Norðurlandi en ekki í öðrum landshlutum.
Aukinn erfðabreytileiki vörn gegn loftslagsbreytingum
Einnig er í umræðukaflanum minnst á loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á birkið, ekki síst vegna nýrra skaðvalda. Góð leið til að halda í erfðabreytileikann, og efla með því möguleika birkisins til aðlögunar, sé að tryggja að birki um land allt fái tækifæri til að vaxa í friði og við hagfelldar aðstæður til að sá sér út með fræi. Þannig verði til nýjar arfgerðir og einhverjar þeirra muni e.t.v. skara fram úr. Þar sem ekki sé víst að sami efniviður birkis henti á láglendi og við hálendisbrúnina segja höfundar æskilegt að fram fari kvæmatilraunir með birki í meiri hæð yfir sjó til að meta hvaða efniviður hentar best við slíkar aðstæður.
Hvað varðar notkun birkis til skógræktar á láglendi álíta höfundar að í senn þurfi að nota efnivið sem hæfir markmiðum ræktunarinnar og hafi umtalsverðan erfðabreytileika til að takast á við ófyrirséðar loftslagsbreytingar. Kynbætta yrkið Embla virðist vera að skila kynbótaávinningi og við frekari kynbætur telja höfundar að tvímælalaust ætti að byggja áfram á þeim ávinningi og bæta inn erfðaefni frá öflugum stofnum eins og Steinadal, Þingvöllum og Þórsmörk til að þróa birki sem hentar almennt á láglendi Íslands. Slík innblöndun myndi auka erfðabreytileika í gróðursettu birki og auka líkur á aðlögun tegundarinnar gagnvart breytilegu umhverfi, t.d. vegna loftslagsbreytinga. Einnig telja höfundar að innblöndun erfðaefnis frá suðlægari löndum geti líka verið valkostur til að auka lífslíkur birkisins ef loftslagsbreytingar verða verulegar.
Hlekkur á greinina: