Notendur rafræns dagatals Skógræktarinnar geta nú skipt um skjámynd á tölvum sínum og sett inn dagatal maímánaðar. Á því er ljósmynd Atla Arnarsonar ljósmyndara af sveppnum gullskjálfanda.

Sveppur mánaðarins var myndaður í Svartaskógi Fossvogsdal. Gullskjálfandi er hlaupsveppur sem sníkir á fúasveppum af ættkvíslinni Peniophora. Hann er algengur á rotnandi viði lauftrjáa og finnst hérlendis árið um kring. Hann er óætur.

Heimild: Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir sveppafræðingur

Dagatal Skógræktarinnar 2021 er aðgengilegt á rafrænu formi á vef Skógræktarinnar. Annars vegar er hefðbundið dagatal sem t.d. má prenta út. Hins vegar eru skjámyndir fyrir hvern mánuð ársins. Þessum skjámyndum má hlaða niður til uppsetningar á skjáborði tölvu og þar með er dagatal viðkomandi mánaðar alltaf innan seilingar.

Festa mynd á skjáborði

1. Smella á hlekkinn hér fyrir neðan. 2. Hægrismella með músinni á myndina þegar henni hefur verið hlaðið niður. 3. Smella á „velja sem skjáborðsmynd“ ( „set as desktop background“). Tilbúið!

Dagatal Skógræktarinnar 2021

Texti: Pétur Halldórsson