Trjáfellingar og grisjun með keðjusög - Hveragerði 23.-25. janúar

Námskeiðið er öllum opið. Það hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa notað keðjusagir en vilja bæta fellingartækni sína eða öðlast meiri þekkingu á meðferð og umhirðu saga.

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. Fyrsti dagurinn er bóklegur þar sem meðal annars er farið yfir fellingartækni, öryggisatriði við fellingu trjáa og líkamsbeitingu. Farið verður yfir leyfi og öryggissjónarmið varðandi fellingu trjáa í þéttbýli. Einnig verður fjallað um val á trjám til fellingar og komið inn á grisjun skóglenda, trjáþyrpinga og garða. Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusagarinnar með því að taka þær í sundur. Farið verður yfir einfalda bilanaleit í söginni, ásamt hefðbundnu viðhaldi, þrif sagar og brýningu keðju. Loks verður einn og hálfur verklegur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi, þar sem lögð er áhersla á rétta fellingartækni og uppröðun viðarins.

Þeir nemendur sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm taki það með á námskeiðið. Aðrir geta fengið búnað lánaðan á námskeiðinu.

  • Kennari: Björgvin Örn Eggertsson skógfræðingur hjá Garðyrkjuskólanum - FSu
  • Tími: 23. og 24. janúar kl. 9-17.30 og 25. janúar kl. 9-16 hjá Garðyrkjuskólanum á Reykjum.
  • Námsmat: Námskeiðið er á framhaldsskólastigi og má meta til 1 einingar í garðyrkjufræðum.
  • Verð: kr. 79.000 (kennsla, gögn og hádegismatur innifalið í verði)
  • Skráning: gardyrkjuskolinn@fsu.is

Skráningarfrestur er til 16. janúar

Hámarksfjöldi þátttakenda er tíu manns.