Jólamarkaði á Vöglum frestað til 9. desember
Hinn árlegi jólamarkaður í Vaglaskógi verður haldinn í húsakynnum Skógræktarinnar á Vöglum í Fnjóskadal sunnudaginn 9. desember kl. 13.-17. Vegna veðurs og ófærðar þurfti að fresta markaðnum en hann hafði áður verið auglýstur 1. desember. Fjölbreyttur varningur handverksfólks úr sveitinni verður til sölu en einnig jólatré, greinar, arinviður og fleira úr skóginum.
30.11.2018