Skógardagurinn mikli fór vel fram
Skógardagurinn mikli var haldinn í 13. sinn á Hallormsstað á laugardaginn var. Í þetta sinn komu milli sex og sjö hundruð manns í skóginn. Það er nokkru færra en venjulega enda fremur svalt í veðri þennan dag og úrkomusamt um morguninn þótt úr rættist þegar dagskráin hófst eftir hádegið. Sigfús Jörgen Oddsson varð Íslandsmeistari í skógarhöggi og í skógarhlaupinu sigruðu þau Elva Rún Klausen og Birkir Einar Gunnlaugsson.
28.06.2017