Ný íslensk vél sem bæði þurrkar og klengir köngla
Vélaverkfræðinemar við Háskólann í Reykjavík hafa hannað og smíðað nýtt tæki sem leysir tvö eldri tæki af hólmi við frævinnslu Skógræktarinnar úr könglum barrtrjáa. Vélin þurrkar bæði og klengir í sömu lotunni. Hún verður afhent Skógræktinni til notkunar í fræmiðstöðinni á Vöglum þegar prófunum og endanlegum frágangi er lokið.
07.11.2022