Landgræðsluverðlaunin veitt bændum í Núpasveit og Þistilfirði
Landgræðsluverðlaunin 2017 voru afhent á opnum fundi um
landgræðslumál í Skúlagarði í Kelduhverfi fyrr í vikunni. Frá þessu er
sagt á vef Landgræðslunnar, land.is. Meðal verðlaunahafa eru
skógarbændurnir Helgi Árnason og Sigurlína J. Jóhannesdóttir á
Snartarstöðum í Núpasveit sem stunda umfangsmikla landgræðslu og rækta skóg á 100 hekturum lands.
01.12.2017