Mr Beast safnar fyrir 20 milljónum trjáa
Youtube-stjarnan Mr Beast hefur ásamt fleiri „jútjúberum“ hrundið af stað átaksverkefninu Team Trees sem hyggst safna fyrir gróðursetningu 20 milljóna trjáplantna áður en árið er liðið. Fyrir hvern Bandaríkjadollara sem gefinn er í verkefnið er gróðursett eitt tré og á fyrstu tveimur sólarhringunum söfnuðust rúmar fimm milljónir dollara.
28.10.2019