Smávegis um umhirðu og viðhald víðiskjólbelta
Best er að sinna viðhaldi og mótun víðiskjólbelta frá upphafi og klippa þau með fárra ára millibili. Nokkuð hefur skort á að hentug tæki til skjólbeltaklippinga væru fyrir hendi hérlendis en nýlega fór Skógræktin með verktaka á nokkur býli á Vestfjörðum til að fylgjast með snyrtingu skjólbelta. Árangurinn reyndist vonum framar.
25.01.2019