Gestkvæmt í bás Skógræktarinnar á Landbúnaðarsýningunni
Fjölmargir stöldruðu við í bás Skógræktarinnar á Landbúnaðarsýningunni í Laugardalshöll sem hófst á föstudag og lauk í gær, sunnudag. Greinilegt er að áhugi á skógrækt er vaxandi. Mikið var spurt um skógrækt á lögbýlum og þá möguleika sem í henni felast. Gestir á sýningunni voru um 100.000 talsins sem er met.
12.10.2018