Áhugaverð ráðstefna um skógarvistfræði
Rannsóknir og aðferðir í skógarvistfræði eru viðfangsefni áhugaverðrar ráðstefnu sem haldin verður í Kórnik í Póllandi dagana 18.-20. maí í vor. Í vinnusmiðjum verður fjallað um svepprótasmit, vefjarækt eða fjölgun plantna í glösum, stofnerfðafræði skógartrjáa og greiningu trjákenndra plöntutegunda.
16.01.2020