Meistaravörn Jóhönnu Bergrúnar Ólafsdóttur
Jóhanna Bergrúnar Ólafsdóttir, sérfræðingur á Mógilsá, rannsóknasviði Skógræktarinnar, ver á föstudag meistararitgerð sína í skógfræði við náttúru- og skógardeild Landbúnaðarháskóla Íslands. Meistararitgerðin nefnist „Notkun aspargræðlinga í nýskógrækt, samanburður á aðferðum, efnivið og landgerðum“.
12.05.2020