Skógræktarmaður selur gleraugnaumgjarðir úr tré
Sjónfræðingurinn og skógræktaráhugamaðurinn Rüdiger Þór Seidenfaden hefur nú hafið sölu á gleraugnaumgjörðum úr tré frá ítalska fyrirtækinu Woodone Eyewear. Umgerðirnar eru fisléttar og níðsterkar, gott dæmi um þær miklu framfarir sem hafa orðið í framleiðslu ýmissa vara úr timbri og öðrum trjáafurðum.
07.05.2015