Málþing um mengun frá Holuhrauni
Málþing um áhrif mengunar frá eldgosinu í Holuhrauni á gróður og lífríki verður haldið mánudaginn 23. mars í fundarsalnum Kötlu á 2. hæð á Hótel Sögu í Reykjavík. Þar verður miðlað upplýsingum um bein og óbein áhrif mengunar frá eldgosinu í Holuhrauni og hvernig eftirliti með menguninni er og verður háttað.
19.03.2015