Allar greinar frumvarpsins samþykktar samhljóða eftir 2. umræðu
Algjör einhugur var um frumvarp til laga um nýja skógræktarstofnun þegar greinar frumvarpsins voru bornar upp til atkvæðagreiðslu í gær ásamt breytingartillögu eftir aðra umræðu. Aðeins er eftir að samþykkja málið sem lög með þriðju umræðu sem fer fram í dag. Þingfundur hefst kl. 10.30 og er málið það tólfta á dagskránni.
02.06.2016