Íslenskt kurl til Færeyja
Trjákurl frá Skógrækt ríkisins á Hallormsstað hefur að undanförnu verið flutt út í nokkrum mæli til Færeyja. Færeyingar nýta kurlið sem undirburð fyrir hross og nú í vikunni fara utan með ferjunni Norrænu um 20 rúmmetrar af lerkikurli. Áform eru um frekari útflutning.
12.04.2016