Hátíðardagskrá í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir garðyrkjuverðlaunin 2022 á sumarhátíð Garðyrkjuskóla LbhÍ á Reykjum sem fram fer á morgun, sumardaginn fyrsta. Þá verður að venju opið hús í Garðyrkjuskólanum og ýmislegt að sjá og gera. Forsetinn afhendir garðyrkjuverðlaunin á sérstakri hátíðardagskrá milli kl. 14 og 15 og þar afhendir líka formaður Bændasamtakanna umhverfisverðlaun Hveragerðis.
20.04.2022