Skógardagur Norðurlands í Kjarnaskógi á laugardag
Á Skógardegi Norðurlands sem haldinn verður á laugardag í Kjarnaskógi verður nýtt útivistar- og grillsvæði á og við Birkivöll formlega tekið í notkun. Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri ávarpar afmælisbarnið og skrifað verður undir samning um nýjan Yndisgarð sem meiningin er að koma upp í skóginum með úrvali skrautrunnategunda.
15.08.2017