Útsýnisvegi lokað vegna lerkisjúkdóms í Wales
Váleg tíðindi berast nú af lerkiskógum í Wales. Frá og með 2. nóvember verður útsýnisveginum Cwmcarn Forest Drive road í Wales lokað vegna illvígs sjúkdóms sem þar herjar á lerki. Um 78% trjánna með fram veginum hafa sýkst af hættulegum þörungasveppi, Phytophthora ramorum, (larch disease). Fella verður trén.
28.10.2014