Frumvarp til nýrra skógræktarlaga tekið til umræðu á Alþingi
Alþingi tók í gær til umræðu stjórnarfrumvarp til nýrra laga um skóga og skógrækt, þingskjal 538 - 470. mál. Þingmenn sem tóku til máls töldu mikilvægt að auka framlög til skógræktar enda væri þetta hagkvæm leið til kolefnisbindingar upp í skuldbindingar Íslands í Parísarsamkomulaginu.
10.05.2017