Atvinnufólk frá Skógræktinni fljótast með geispuna
Keppendur frá Skógræktinni stóðu sig best í gróðursetningu skógarplantna í gróðursetningarkeppni sem haldin var nýverið á Hafnarsandi í Ölfusi. Auk gróðursetningar trjáplantna með geispu var keppt í gróðursetningu og greiningu sumarblóma og þegar upp var staðið urðu öll liðin þrjú sem kepptu jöfn að stigum.
23.06.2021