Loftmyndir gerðar aðgengilegri stofnunum
Loftmyndir ehf. og Landmælingar Íslands hafa undirritað tímamótasamning um aðgengi að loftmyndum Loftmynda ehf. fyrir allar A-hluta ríkisstofnanir. Þetta er fagnaðarefni fyrir skógrækt á Íslandi því loftmyndir verða æ mikilvægara tæki til áætlanagerðar í skógrækt, við skógmælingar og úttektir.
15.09.2021